Viðfangsefni: Textavinna, málrækt, kynning á mismunandi lestarleiðum og hjálpargögnum.
Lýsing: Nemandinn vinnur með margvíslegan texta s.s. bókmenntatexta og texta í dagblöðum, tímaritum og á netinu. Nemandinn kynnist fjölbreytileika tungumálsins og veltir fyrir sér ýmsum hliðum þess. Verkefnavinna sem stuðlar að aukinni færni í íslensku. Kynning á mismunandi aðferðum til lestrar s.s. ritmáls-, hljóð- og rafbókum. Einnig verða kynnt hjálpargögn s.s. flýtiorðasasöfn, leiðréttingarforrit og talgervill. Lögð er áhersla á að nemendur noti viðeigandi hjálpargögn og lestrarleið við hæfi hvers og eins.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi lestrarfærni
- mikilvægi lesskilnings
- mismunandi lestrarleiðum
- mismunandi hjálpargögnum til lesturs og ritunar
- að tungumálið sé margbreytilegt og í stöðugri þróun
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tileinka sér texta til gagns og gamans
- nýta aukin orðaforða
- nýta sér hjálpargögn
- meta hvaða lestrarleið hentar
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita tungumálinu á fjölbreyttan hátt
- styrkja eigin málfærni
- beita gagnrýnni hugsun í málnotkun
- nýta bækur sér til gagns og gamans
- nýta upplýsingatækni