ÍSLE1GÍ05 (ST) - Goðafræði, þjóðsögur og Íslendingasögur - Starfsbraut

Viðfangsefni: Þekktar persónur, atburðir og sögur úr goðafræði, þjóðsögum og Íslendingasögum.


Lýsing: Fjallað verður um norræna goðafræði, helstu æsi og heim goðanna. Þekktum íslenskum þjóðsögum og Íslendingasögum verða gerð skil og fjallað um hlutverk þeirra í menningararfi okkar.


Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu þáttum goðafræði
  • söguþræði þekktra þjóðsagna
  • söguþræði þekktra Íslendingasagna

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • fjalla um goðafræði
  • fjalla um söguþráð úr þjóðsögum
  • fjalla um söguþráð og persónur í Íslendingasögum

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja að norræn goðafræði, þjóðsögur og Íslendingasögur eru hluti af menningararfi Íslendinga