ÍSLE1HÁ05 (ST) - Heimildavinna út frá áhugasviði - Starfsbraut

Viðfangsefni: Fræðsla um heimildir, heimildavinna út frá áhugasviði með fjölbreyttum aðferðum.


Lýsing: Kynnt verður hvað felst í heimildavinnu, hvernig heimilda er aflað og rætt um trúverðugleika heimilda. Nemendur vinna heimildaverk og velja sér viðfangsefni eftir áhuga hvers og eins. Kynnt verða mismunandi möguleikar á verkefnaskilum svo sem ritgerðir, vídeóverk, glærusýningar, leikþættir, útvarpsþættir og fleira. Nemendur kynna verk sín fyrir hópnum.


Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • trúverðugleika heimilda
  • hvar hægt er að afla heimilda
  • mismunandi leiðum í úrvinnslu

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • velja sér efni eftir áhugasviði
  • afla heimilda
  • vinna úr heimildum
  • velja leið til úrvinnslu verkefna
  • kynna heimildaverk
  • hlusta á kynningu samnemenda af virðingu

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hlusta á kynningu samnemenda af virðingu
  • nýta sér mismunandi aðferðir við vinnslu heimildaverks