ÍSLE1LD05 (ST) - Ljóð og dægurlagatextar - Starfsbraut

Viðfangsefni: Einkenni og boðskapur ljóða, söng- og dægurlagatexta og ljóðagerð.


Lýsing: Fjallað verður um helstu einkenni ljóða/söngtexta og lögð áhersla á mismunandi uppbyggingu og form þeirra. Lesin verða ljóð og rýnt í boðskap þeirra. Nemendur spreyta sig á ljóðagerð. Farið verður í boðskap dægurlagatexta úr menningarheimi nemenda út frá áhuga hvers og eins.


Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mismunandi gerðir ljóða/söngtexta og dægurlagatexta
  • hugtökum sem tengjast ljóðum
  • innihaldi ljóða/söngtexta og dægurlagatexta

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa og fara með ljóð/söngtexta og dægurlagatexta
  • greina mismunandi ljóð/söngtexta og dægurlagatexta
  • semja ljóð
  • átta sig á gildi dægurlagatexta í félagslegu samhengi

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita gagnrýnni hugsun varðandi boðskap ljóða/söngtexta og dægurlagatexta
  • nýta sköpunargáfu sína og hugmyndaflug í ljóðagerð
  • hlusta á og virða verk annarra