LÍFS1KJ05 (ST) - Samskipti kynjanna og kynfræðsla - Starfsbraut

Viðfangsefni: Samskipti kynjanna og kynfræðsla.


Lýsing: Fjallað verður um samskipti kynjanna, kynlíf, æxlunarkerfi mannsins, kynhneigð og kynheilbrigði. Lögð verður áhersla á mikilvægi gagnkvæmrar virðingar í samskiptum fólks. Jafnframt verður fjallað um kynferðislega, andlega og fjárhagslega misnotkun. Áhersla verður lögð á að efla sjálfvirðingu nemenda og mikilvægi ábyrgrar ákvarðanatöku.


Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • virðingu í samskiptum
  • eigin mörkum og virða mörk annarra
  • æxlunarkerfi mannsins
  • hugtakinu kynhneigð
  • ábyrgri kynhegðun
  • mikilvægi kynheilbrigðis

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • átta sig á viðhorfi til kynlífs
  • átta sig á að viðeigandi samskipti einkennast af virðingu
  • leita sér upplýsinga varðandi kynfræðslu

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka ábyrgð á eigin samskiptum
  • taka ábyrgð á eigin kynhegðun
  • geta valið og hafnað í athöfnum og samskiptum