LÍFS1VE03 (ST) - Valdefling - Starfsbraut

Viðfangsefni: Valdefling.


Lýsing: Áhersla er á lýðræði og mannréttindi. Farið verður í hugtökin lýðræði, jafnrétti og mannréttindi og hvernig þessi hugtök birtast í samfélagi nútímans hjá fólki með fötlun. Sérstök áhersla verður lögð á valdeflingu (empowerment). Fjallað er um réttindagæslu fatlaðra og hvernig hún nýtist nemendum. Fjallað er sérstaklega um samning Sameinuðu Þjóðanna um málefni fólks með fötlun.


Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • lýðræði og hvað það felur í sér
  • jafnrétti og hvað það felur í sér
  • mannréttindum og hvað það felur í sér
  • réttindagæslu og hvað hún felur í sér
  • hvaða réttindagæslumaður er á svæði nemandans

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • átta sig á birtingarmyndum lýðræðis fyrir sig sem einstakling
  • átta sig á birtingarmyndum jafnréttis fyrir sig sem einstakling
  • átta sig á birtingarmyndum mannréttinda fyrir sig sem einstakling
  • átta sig á hvað valdefling þýðir fyrir einstaklinginn
  • leita eftir aðstoð réttindagæslumanns

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta metið eigin stöðu í samfélaginu út frá mannréttindum, lýðræði og jafnrétti
  • taka afstöðu til málefna sem varða fólk með fötlun í samfélaginu
  • meta hvenær um misrétti er að ræða á milli fatlaðra og ófatlaðra
  • vita við hvaða aðstæður þarf að leita aðstoðar réttindagæslumanns á sínu svæði