NÁTV1EE03 (ST) - Eðlis- og efnafræði - Starfsbraut

Viðfangsefni: Byggt á efnum og eðli hluta, verkegir tímar.


Lýsing: Viðfangsefni áfangans verða byggð bæði á efnum og eðli hluta. Tímarnir eru verklegir og ein tilraun gerð í hverjum tíma. Nemendur kynnast því hvernig tilraunir eru framkvæmdar og þjálfast í vinnubrögðum sem tengjast framkvæmd þeirra. Verkefnin verða tengd umhverfi nemenda með það fyrir augum að auka áhuga þeirra og kynna þeim mikilvægi þekkingar á eðlis- og efnafræði í daglegu lífi.


Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvar og hvenær eðlis- og efnafræði kemur við sögu í daglegu lífi
  • grundvallarvinnubrögðum við tilraunir í efna- og eðlisfræði
  • efnum og eðli efna sem nýtt eru við tilraunir

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • grundvallarvinnubrögðum við tilraunir í efna- og eðlisfræði
  • nota viðeigandi tæki og áhöld við einfaldar tilraunir
  • setja upp og framkvæma verklegar æfingar/tilraunir
  • vinna úr niðurstöðum

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tengja verklegar æfingar/tilraunir við daglegt líf og umhverfi
  • nýta sér eðlis- og efnafræði í hinu daglega lífi
  • koma niðurstöðum tilrauna á framfæri á einfaldan hátt
  • draga ályktanir og útskýra út frá niðurstöðum verklegra æfinga
  • umgangast efni og eðli þeirra á ábyrgan hátt