SAGA3SF05 - Saga - Saga átakasvæða í heiminum
Viðfangsefni: Áfanginn fjallar um söguna á bakvið þau átök sem eiga sér stað hverju sinni og undanfarin ár.
Lýsing: Áfanginn fjallar um söguna á bakvið þau átök sem eiga sér stað hverju sinni og undanfarin ár. Áfanginn er umræðuáfangi og byggist því á vinnu nemenda, rannsóknum þeirra, kynningum og umræðum um hver efni fyrir sig.
Efni sem fjallað er um eru til dæmis stríð í Úkrarínu, Ísrael og Palestína, Súdan, Myanmar, Congo, Líbýa, Sýrland og fleira
Forkröfur: 5 einingar á 2. þrepi
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvar viðkomandi átakasvæði eru
- hver er sögulegur bakgrunnur átakanna
- hvaða öfl eru að verki og hvaðan þau sækja stuðning og fjármagn
- hvaða möguleikar eru á lausn á viðkomandi átökum
- hvort Ísland tengist eða hafi tengst viðkomandi átökum á einhvern hátt
- Hvernig áróðri er beitt til að breyta viðhorfi okkar
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa fræðilega texta á íslensku og ensku og e.t.v. fleiri tungumálum og túlka merkingu þeirra
- nýta internetið til að afla sér þekkingar á átökum dagsins
- meta gildi ólíkra heimilda t.d. frá aðilum átaka, alþjóðastofnunum, fréttaveitum o.fl.
- taka saman mislangar og/eða –ítarlegar úttektir um átök eða þætti þeirra á góðri íslensku
- geta undirbúið og stjórnað umræðum um efni
- geta undirbúið og flutt kynningar um efni
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér grein fyrir afleiðingum átakanna fyrir fólkið sem býr á svæðinu
- átta sig á áhrifum átakanna á alþjóðastjórnmál og samskipti ríkja
- koma þekkingu sinni og skilningi á efninu á framfæri með fjölbreyttum hætti
- geta tekið þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um efni áfangans
- geta metið alþjóðleg átök út frá eigin forsendum og skilningi
- geta gert sér grein fyrir upplýsingaóreiðu sem umkringir átök