SKAP1MY03 (ST) - Skapandi greinar - myndlist - Starfsbraut

Viðfangsefni: Myndlist, sköpun og fjölbreytni.


Lýsing: Farið er í grunnþætti myndlistar þar sem áhersla er lögð á að efla myndræna hugsun nemandans, sjálfsöryggi og túlkun við myndsköpun með fjölbreyttum verkefnum. Fjallað um og unnið með grunnlitina, heita- og kalda liti, þrívídd, litasvið blýantsins, ofl. Innihald áfangans er breytilegt frá önn til annar og tekur mið af þeim hópi nemenda sem er skráður í áfangann hverju sinni. Lögð er áhersla á að nemandinn auki þekkingu og leikni tengda viðfangsefninu og öðlist hæfni í að meðhöndla verkfæri, mismunandi liti og pappír í tengslum við myndsköpun sína. Áhersla er lögð á vandvirkni og umgengni verkfæra og vinnuborða.


Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • áferð mismunandi efna
  • mismunandi verkfærum
  • litablöndun
  • ólíkum aðferðum við listsköpun

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:·

  • blanda liti til að fá fram þann lit sem han sækist eftir
  • nýta þau verkfæri sem við eiga hverju sinni
  • vinna með mismunandi leiðir til listsköpunar
  • vinna frá hugmynd til lokaafurðar

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna á persónulegan hátt með eigin hugmyndir
  • bera virðingu fyrir eigin hugmyndum og annarra
  • sýna frumkvæði og skapandi nálgun í verkum sínum
  • vinna verk með mismunandi aðferðum
  • nota fjölbreytt hráefni í myndsköpun
  • nýta tómstundir til listsköpunar