STÆR1EF05 (ST) - Eigin fjármál, fjármálalæsi - Starfsbraut

Viðfangsefni: Fjármálalæsi í víðu samhengi.


Lýsing: Áhersla verður á fjármálalæsi í víðu samhengi. Farið verður yfir helstu persónuleg útgjöld ungs fólks og mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir eigin fjármál. Áhersla lögð á að nýta upplýsingatækni í stærðfræði. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.


Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnaðgerðum stærðfræðinnar
  • grunnhugtökum stærðfræðinnar
  • nauðsyn þess að hafa yfirsýn yfir eigin fjármál
  • nauðsyn þess að sýna ábyrgð í fjármálum
  • nauðsyn þess að forgangsraða í fjármálum
  • ýmsum forritum sem hjálpa til við yfirsýn eigin fjármála


Leikniviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita viðeigandi aðgerðum og nota þær á réttan hátt
  • skipuleggja eigin fjármál
  • nota forrit og önnur hjálpartæki

Hæfniviðmið: Nemandinn skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér grunnaðgerðir stærðfræðinnar í daglegu lífi
  • hafa yfirsýn yfir eigin fjármál
  • nota viðeigandi hjálpartæki