STAR1SV05 (ST) - Starfsnám á vinnustað - Starfsbraut
Viðfangsefni: Einstaklingurinn sem starfsmaður og atvinnulífið almennt.
Lýsing: Í þessum áfanga fá nemendur tækifæri til kynnast atvinnulífinu af eigin raun. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist völdu starfi í ákveðinn tíma og læri gildi þess að vera ábyrgur í verki. Áfanganum er ætlað að auka sjálfstæði og sjálfsöryggi nemanda þannig að þeir geti tekið virkan þátt í atvinnulífinu að skóla loknum.
Starfsnámið er skipulagt í samráði við nemendur og vinnuveitendur.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreyttum vinnustöðum
- mismunandi störfum innan vinnustaðar og þeim vinnubrögðum sem þarf til að inna þau störf af hendi.
- gildi vinnunnar í lífi fólks og þess að vera ábyrgur í verki
- mikilvægi sjálfstæðis á vinnustað
- mikilvægi þess að fara eftir fyrirmælum á vinnustað
- áhættuþáttum sem leynast í starfsumhverfinu
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:·
- velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
- vinna sjálfstætt eða undir leiðsögn
- fylgja fyrirmælum
- fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
- fylgja samskiptareglum á vinnustað
- koma sér til og frá vinnu á réttum tímum
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í atvinnulífinu
- sýna ábyrgð í verki
- biðja um aðstoð ef þess þarf
- nota viðeigandi öryggisbúnað á vinnustað.
- tilheyra starfsmannahópi