Viðfangsefni: Umhverfisfræði, náttúruauðlindir, umhverfisvandamál, vistvænn lífstíll og sjálfbærni.
Lýsing: Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur verði meðvitaðir um umhverfisvernd. Leitast verður við að þeir þroski með sér aukna virðingu fyrir náttúrunni og ábyrgðartilfinningu gagnvart sínu nánasta umhverfi. Kynnt verður hugtakið vistspor í þessu samhengi.
Fjallað er um náttúruauðlindir og orkugjafa Íslands.
Rætt um umhverfisvandamál sem við glímum við í heiminum í dag og hvað er til ráða. Kynnt verður hugsunin; ein jörð.
Helstu efnisþættir eru; náttúruperlur Íslands, vatn, jarðhiti, sólar- og vindorka og nýting jarðefna. Vistvænn lífsstíll og neysluvenjur, lífræn ræktun, skógrækt, mengun, sorp og flokkun og endurnýting. Kynnt verður hugtakið sjálfbærni í þessu samhengi.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- áhrifum mannsins á umhverfið
- áhrifum hversdagslegra athafna á umhverfið
- fjölbreyttum leiðum til vistvænna lifnaðarhátta
- helstu náttúruauðlindum og hvernig nýtingu þeirra er háttað
- helstu orkugjöfum og hvernig nýtingu þeirra er háttað
- helstu mengunarvöldum og hvað er til ráða
- hugtökunum vistspor og sjálfbærni
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- sýna vistvænan lifnaðarhátt í verki
- flokka sorp eftir aðstæðum hverju sinni
- endurnýta og endurvinna eftir aðstæðum hverju sinni
- nýta matvæli vel
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leggja mat á upplýsingar sem tengjast umhverfismálum
- leggja mat á upplýsingar sem tengjast umhverfismálum
- taka þátt í umræðum um umhverfismál
- taka afstöðu til umhverfismála
- meta ákvarðanir um eigin lífstíl og neyslu á gagnrýninn hátt