ÞÝSK1MT05 - Þýska - Menning og tjáning, 4. áfangi í þýsku

Lýsing

Viðfangsefni: Málfærni og menning þýskumælandi landa

Lýsing: Áhersla er lögð á að þjálfa áfram alla málfærniþætti: munnlega og skriflega tjáningu, hlustun og lesskilning. Unnið er með orðaforða sem tengist nánasta umhverfi nemandans, daglegum athöfnum, áhugamálum og ferðalögum. Menningu og staðháttum þýskumælandi landa er fléttað inn í kennsluna m.a. í gegnum lestur viðeigandi texta, s.s. frétta, sem varpa ljósi á daglegt líf og málefni líðandi stundar. Einnig fá nemendur innsýn inn í alþjóðlegt samstarf og byggja upp sinn evrópska tungumálapassa.

Forkröfur: ÞÝSK1ME05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða sem tengist daglegu lífi og athöfnum, ferðalögum, störfum, vinnu og líðandi stund

  • grundvallaratriðum þýskrar málfræði

  • framburðarreglum og tónfalli

  • þýskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu og siði þjóðanna

  • samskiptavenjum og mismunandi notkun málsins eftir aðstæðum

  • alþjóðlegu samstarfi, t.d. sendiráðum

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir með þeim orðaforða sem hann hefur öðlast og nota viðeigandi málfar

  • skilja aðalatriði í hlustun s.s. sjónvarpsefni, útvarpsefni eða annars konar hlustun

  • lesa og skilja margskonar gerðir texta

  • tjá sig við flestar aðstæður sem geta komið upp á ferðalagi

  • fjalla um samfélag líðandi stundar s.s. fréttir, menningu, hefðir og siði

  • tjá sig skýrt og beita málfari við hæfi í þeim málefnum sem hann hefur kynnt sér

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja daglegt mál ef hann þekkir umræðuefnið

  • geta talað um málefni líðandi stundar og sagt álit sitt á efninu

  • tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýtt á ýmsan hátt

  • leysa ýmis mál sem upp koma í samskiptum og haga orðum sínum á viðeigandi hátt

  • bjarga sér sem ferðamaður í þýskumælandi umhverfi

  • nýta markvisst upplýsingatækni og ýmis hjálpargögn við textasmíð og önnur samskipti

Til baka