Brautskráning stúdenta frá Flensborgarskólanum

Brautskráning stúdenta fer fram frá Hamarssal við hátíðlega athöfn laugardaginn 24. maí kl:13:00. Stúdentsefni mæta um kl. 12:30 á kaffistofu starfsfólks í Hamri með stúdentshúfuna meðferðis og auðvitað góða skapið líka. Við minnum á að stúdentsefni mega bjóða með sér 2 - 3 gestum. Að útskriftarathöfn lokinni fara nýstúdentar í myndatöku á efri hæð áður en haldið er út í lífið.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll.