Brautskráning stúdenta frá Flensborgarskólanum

Brautskráning stúdenta fer fram frá Hamarssal við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 28. maí kl. 14:00. Stúdentsefni mæta kl. 13:30 á kaffistofu starfsfólks í Hamri með stúdentshúfuna meðferðis og auðvitað góða skapið líka. Við minnum á að stúdentsefni mega bjóða með sér 2 - 3 gestum. Að útskriftarathöfn lokinni fara nýstúdentar í myndatöku á efri hæð áður en haldið er út í lífið.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll.