Innritun fyrir haustið lokið - 225 nýnemar á næsta skólaári

Nú er innritun lokið í Flensborgarskólanum. Alls bárust um 550 umsóknir, þar af um 500 frá 10. bekkingum, í fyrsta, öðru og þriðja vali samtals.

Alls voru innritaðir 225 nýnemar á fyrsta ári auk 13 nemenda á ÍSAN námsleið og hafa allir nýnemar við skólann fengið tölvupóst með upplýsingum um námsbraut, bekkjarröðun og fleira. Verið öll hjartanlega velkomin í Flensborg!

Greiðsluseðill fyrir skólagjöldum verður sendur út á næstu dögum ásamt stuttu kynningarbréfi um skólann og fyrstu daga skólahalds í ágúst en kennsla hefst miðvikudaginn 20. ágúst kl. 08:30, samkvæmt stundatöflu. Tekið verður á móti nýnemum við skólann daginn áður, þriðjudaginn 19. ágúst kl. 11:00. Athugið að hægt er að skoða skóladagatal næstu annar hér. Við biðjum hér með forráðamenn um að skipuleggja frí barna sinna þannig að það hafi ekki áhrif á mætingu þeirra í skólann í upphafi annar.

Skólinn er nú lokaður vegna sumarleyfa en brýn erindi má senda á flensborg@flensborg.is og þeim verður svarað við fyrsta tækifæri. Skrifstofan opnar aftur miðvikudaginn 6. ágúst kl. 9.

Njótið sumarsins!