- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Skólaskjár
- Enska
- Leiðbeiningar
Kæru nemendur
Skólaárið 2025-2026 er um það bil að hefjast og er því undirbúningur fyrir haustönnina í fullri vinnslu. Meðal annars er verið að búa til stundatöflur fyrir alla nemendur og á meðan þeirri vinnu stendur er lokað fyrir INNU. Við stefnum á að opna fyrir stundatöfluna mánudaginn 18. ágúst en kennsla hefst miðvikudaginn 20. ágúst, strax að lokinni skólasetningu kl. 08:30.
Skólameistari sendi öllum nemendum skólans bréf fyrr í dag. Þar er að finna ýmsar upplýsingar um skólabyrjun, bókalista, tölvumál, töflubreytingar eldri nemenda, bekkjarskipan nýnema og mötuneyti. Í bréfinu kemur einnig fram að nemendur og foreldrar eru beðnir um að kynna sér helstu reglur skólans, m.a. almennar skólareglur og reglur um mætingu. Endilega lesið bréfið vel yfir.
Við hlökkum til að sjá ykkur!