Fimm drengir með hæstu einkunnir Flensborgarskólans

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði brautskráði í dag 101 nemenda og útskrifuðust þau af fjórum brautum skólans; 6 af félagsvísindabraut, 13 af raunvísindabraut, 16 af viðskipta- og hagfræðibraut og 61 af opinni braut. Fimm nemendur luku námi á starfsbraut. Yfir helmingur þeirra lauk einnig námi af einu af eftirtöldum sviðum skólans; félagslífssviði, listasviði, tæknisviði og íþróttaafrekssviði.
 
Hæstu einkunn hlaut Daði Þór Friðriksson með 9,66 en hann hlaut Menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi. Daði Þór hlaut einnig styrk frá Rio Tinto fyrir góðan árangur í raungreinum, verðlaun frá skólanum fyrir framúrskarandi árangur í spænsku og íþróttaafreksgreinum en Daði Þór er afreksmaður í sundi. Hann hlaut viðurkenningu frá stærðfræðafélaginu fyrir góðan árangur í stærðfræði og þá hlaut hann viðurkenningu frá Efnafræðifélagi Íslands sem veitt eru nemendum sem sýna afburða árangur í efnafræði en Daði Þór gerði sér lítið fyrir og sigraði landskeppni framhaldsskólanna í greininni fyrr á árinu.
 
Adam Ernir Níelsson varð semidúx Flensborgarskólans með einkunnina 9,26. Adam Ernir hlaut Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi og í íþrótt sinni, frjálsum íþróttum. Hann fékk einnig verðlaun frá skólanum fyrir framúrskarandi árangur í ensku og spænsku. Það er sérstakt fagnarefni að þessu sinni að fimm vaskir drengir skipa hóp þeirra nýstúdenta sem luku prófi með yfir 9 í meðaleinkunn. Mátti vart sjá mun á einkunnum þeirra, enda afburðarnámsmenn allir og frábærar fyrirmyndir. Þá voru fimm nýnemar, þær Anna Heiða Óskarsdóttir, Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir, Ebba Guðríður Ægisdóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir og Júlía Gunnarsdóttir Haarde, verðlaunaðir fyrir frábæran námsárangur á fyrsta námsári.
 
Nýstúdínan Steiney Lilja Einarsdóttir söng við athöfnina og Emilía Ósk Grétarsdóttir flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta. Emilía Ósk minntist áranna í Flensborg með hlýju og hrósaði metnaðarfullu skólastarfi, góðum kennurum og góðum anda. Erla Sigríður Ragnarsdóttir, skólameistari, kallaði í sínu ávarpi, eftir auknu samtali um helstu áskoranirnar á framhaldsskólastiginu og markvissri stefnumótun á sviði framfara, þ.m.t. nýtingu og þróunar gervigreindar. Skólameistari treystir á að hlustað sé á fagfólk í framhaldsskólum landsins enda velferð og aukin stoðþjónusta á skólastiginu framfaramál samfélagsins alls.
 
Til hamingju nýstúdentar!