Flaggað var í hálfa stöng í dag vegna andláts fyrrum stærðfræðikennara við skólann, Fiðriks Olgeirs Júlíussonar. Útför Friðriks fór fram frá Guðríðarkirkju, en hana sóttu fjölmargir starfsmenn Flensborgarskólans sem höfðu borið gæfu til að starfa með Friðriki í gegnum árin.
Friðrik Olgeir Júlíusson, fyrrum kennari við Flensborgarskólann, lést á heimili sínu á Seltjarnarnesi þann 4. október síðastliðinn.
Friðrik Olgeir Júlíusson kom til starfa við Flensborgarskólann haustið 2005 og lét af störfum í lok árs 2024. Hann var farsæll stærðfræðikennari, mikill raunvísindamaður og gegndi fjölda trúnaðarstarfa á starfsferli sínum við skólann. Friðrik var mikilvægur leiðtogi í starfsmannahópnum, fór meðal annars fyrir kennarafélagi skólans og samstarfsnefnd og hafði frá upphafi veigamiklu hlutverki að gegna við gerð stofnanasamninga.
Friðrik var afar vel liðinn af nemendum sínum, sýndi þeim nærgætni og virðingu og hvatti þau áfram í námi sínu enda ávallt tilbúinn til að aðstoða þau langt umfram skilgreindan kennslutíma. Þar lagði hann sig allan fram og naut sín jafnvel hvað best, maður á mann, í samtali við nemendur sína þar sem hann útskýrði helstu formúlur og aðferðir stærðfræðinnar. Í hans huga var stærðfræðin töfraheimur og honum var mikið í mun að nemendur hans öðluðust skilning á henni og tileinkuðu sér þá færni sem nýst gæti til að bjarga sér í hinu daglega lífi.
Við sem nutum þeirra forréttinda að starfa með Friðriki minnumst hans af hlýhug. Hann var maður samtalsins, hafði ríka þörf fyrir að ræða málin og kryfja þau til mergjar. Ekki síst átti það við þegar nær dró kosningum. Þá hafði hann sérstaka ánægju af því að velta fyrir sér líklegum úrslitum, stjórnarmyndunum og þeim möguleikum sem framtíðin kynni að bera í skauti sér.
En umfram allt var ánægjulegt að heyra Friðrik segja frá dætrum sínum, Helgu og Margréti. Af þeim var Friðrik ákaflega stoltur. Þær voru hans mesta ríkidæmi og velferð þeirra skipti hann öllu. Fyrir hönd skólans sendi ég þeim og fjölskyldum þeirra hlýjar samúðarkveðjur. Við kveðjum Friðrik með þakklæti fyrir samfylgdina og framlag hans til skólastarfsins.
Erla Sigríður Ragnarsdóttir, skólameistari Flensborgarskólans.