FH og Haukar etja kappi um þessar mundir um laust sæti í úrslitaviðureign Íslandsmótsins í handbolta. FH leiðir einvígið eins og er, en fjórði leikurinn liðanna fer fram á Ásvöllum í kvöld og hefst hann klukkan 19.00.
Við í Flensborg eigum heldur betur okkar fulltrúa þar, en þessar skemmtilegu myndir voru teknar á æfingum liðanna í gær þar sem lokaundirbúningur fyrir leik kvöldsins fór fram. Þar má sjá að í hvoru liði eru einir tíu Flensborgarar sem taka þátt í leiknum, ýmist sem leikmenn, þjálfarar eða liðsstjórar! Langflestir af þeim fóru í gegnum íþróttaafrekssvið skólans sem var sett á laggirnar árið 2006, þar sem nemendur fá frábært utanumhald til þess að skara fram úr jafnt í námi sem og í sinni íþrótt.
Við óskum okkar fólki að sjálfsögðu góðu gengi í kvöld sem endranær og hlökkum til spennandi viðureignar.
Áfram Flensborg!

