Flensborgarar í leikhúsi

Nemendur í leikhúsáfanganum hafa séð nokkrar sýningar í vetur. Á dögunum sáu þau bæði Ladda og Óbærilegan léttleika knattspyrnunnar í Borgarleikhúsinu. Bæði kvöldin voru vel heppnuð og mikið hlegið og nemendur létu vel af sýningunum. Framundan eru síðan heimsóknir hjá hópnum í Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið til að kynna sér starfsemi húsanna og næstu leikverk. Spennandi og skapandi nám þar!