Lið Flensborgarskólans bar sigur úr býtum í Framhaldsskólamótinu í golfi, sem fór fram um síðustu helgi. Mótið var haldið í Öndverðarnesi í sannkallaðri veðurblíðu, en þátttakendur voru kennarar, stjórnendur og aðrir starfsmenn úr framhaldsskólum landsins. Keppt var með svokölluðu punktafyrirkomulagi og þar stóð lið Flensborgarskólans uppi sem sigurvegari eftir harða keppni.

Lið skólans var skipað þeim Árna Stefáni Guðjónssyni, Bjarna Þórarni Hallfreðssyni, Guðjóni Óskari Guðmundssyni og Hilmi Heiðari Lundevik. Liðsstjóri var Ásbjörn Friðriksson.
Hilmir Heiðar Lundevik vann einnig til verðlauna fyrir besta árangur í einstaklingskeppni karla.
Sigurlaunin voru ekki af verri endanum; glæsilegur eignabikar og svo farandbikar sem verður undir í móti næsta árs, en það verður einmitt í umsjá okkar í Flensborgarskólanum.
Til hamingju með árangurinn drengir!