Flensborgarfréttir

Hér má sjá nýjustu Flensborgarfréttir með helstu upplýsingum um það sem framundan er í skólastarfinu. Endilega lesið fréttabréfið vel og vandlega, þar má m.a. finna ítrekun á eftirtöldu:

Í flestum kennslustofum eru nú komin svokölluð símahótel. Þau eru fyrst og fremst sett upp til þess að nemendur getið notið kennslustundanna betur með því að setja símann í hvíld á meðan á kennslu stendur og vonandi verða þau til að bæta námsumhverfi nemenda, draga úr truflunum og auka vellíðan og námsárangur. Eins og kemur fram í skólareglum þá eru kennarar verkstjórar í kennslustundum og ber nemendum að fylgja fyrirmælum þeirra, virðum þetta og hjálpumst að við að búa til vinnufrið og ró í kennslustundum.

Lán á blýöntum og vasareiknum þarf nú að heyra sögunni til og viljum við hvetja nemendur til að gæta vel að námsgögnum sínum alla daga. Það er auðvitað lykilatriði þegar maður er í skóla að mæta með þau gögn sem þarf hverju sinni þannig að við biðjum hér með nemendur sérstaklega um að huga vel að náminu, allt frá því að fylgjast vel með á INNU, skoða glærur og útskýringardæmi þar, mæta með ritföng í tíma og kennslubækur þegar þörf er á. Ef einhver lendir í vandræðum þá er hægt að kaupa blýanta á skrifstofu skólans og fá lánaða vasareikna gegn ábyrgð en best er auðvitað að nemendur eigi sín gögn sjálfir og séu vel undirbúnir fyrir hverja kennslustund.

Allt er þetta partur af því að tilheyra góðu og öflugu námssamfélagi, að bera ábyrgð á námi sínu, bera virðingu fyrir umhverfi sínu og taka þátt í náminu alla leið.