Flensborgarfréttir

Hér má sjá nýjustu Flensborgarfréttir með helstu upplýsingum um það sem framundan er í skólastarfinu. Eftirfarandi er tölvupóstur frá skólameistara sem fylgdi með fréttabréfinu:

Kæru nemendur og foreldrar/forráðamenn

Meðfylgjandi er fréttabréf með því helsta úr lífinu hér í Flensborg. Vek hér með athygli á miðannarmati í INNU en það verður birt síðar í dag. Tilgangur miðannarmatsins er að nemendur og foreldrar sjái námsstöðuna í hverjum áfanga fyrir sig og geti því brugðist við ef á þarf að halda. Þá er hægt að leita til viðkomandi hámarkskennara/umsjónarkennara eða nemendaþjónustunnar, sjá nánari upplýsingar á heimasíðu skólans.

Af félagslífi nemenda er það helst að frétta að verið er að æfa leikverk vetrarins af fullum krafti auk þess sem undirbúningur fyrir árshátíð skólans er hafinn. Gert er ráð fyrir að frumsýning verksins verði einmitt í árshátíðarviku, strax á eftir páskafríi. NFF mun kynna betur dagskrá vikunnar á næstu dögum en árshátíðardansleikurinn fer fram fimmtudaginn 16. apríl. Þá er góðgerðarvika hafin og en verið er að safna fyrir minningar- og styrktarsjóðinn Örninn sem býður upp á helgardvöl fyrir börn og unglinga sem hafa misst foreldri eða annan nákominn ættingja. Falleg hugsun hjá nemendum okkar og við hvetjum auðvitað nemendur okkar áfram til allra góða verka, dagskrá vikunnar er a.m.k. fjölbreytt og vonandi tekst söfnunin vel til.

Kíkið endilega á fréttabréfið með því að smella á myndina hér að neðan og gangi ykkur vel!