Flensborgarfréttir - það helsta sem framundan er í skólastarfinu

Skólastarfið er farið af stað og má segja að líf og fjör einkenni skólastarfið hér á Hamrinum þessa dagana. Nemendahópurinn er stór, eða rétt um 700 nemendur, fjölbreyttur og það er von okkar að allir eigi eftir að njóta sín í náminu hjá okkur. Stoðþjónusta skólans er margþætt og það er um að gera að kynna sér hana vel. Við gerum t.d. ráð fyrir því að bæði raungreinaver og jafningjakennsla í raungreinum og stærðfræði fari af stað á næstu dögum. Þá er ritver skólans einnig hentugur vettvangur til að fá aðstoð með heimavinnuna sem og bókasafn skólans en það er vel búið fyrir nemendur sem vilja næði til að læra eða vinna hópaverkefni, svo fáein dæmi séu tekin af þeim stuðningi sem við getum veitt nemendum okkar.