Flensborgari á Vísinda- og nýsköpunarþingi

Halldór Ingi Hafþórsson, nemandi okkar á raunvísindabraut, sótti fyrir hönd skólans Vísinda- og nýsköpunarþingi sem Vísinda- og nýsköpunarráð stóð fyrir á dögunum. Þar kom saman ungt fólk og fulltrúar vísindasamfélagsins, atvinnulífsins og stjórnvalda. Halldóri Inga fannst þingið áhugavert og gaman að heyra af reynslu hinna ýmissu sprotafyrirtækja í íslensku atvinnulífi og ekki síst þeim nýjungum og áskorunum sem ung sprotafyrirtæki standa frammi fyrir. Honum þóttu sérstaklega málefni sjávar og fullnýtingu sjávarafurða áhugaverð og hann fer því reynslunni ríkari inn í loka námsárið sitt hér í Flensborg.

Við þökkum Halldóri Inga fyrir að taka þátt fyrir hönd skólans.