Flensborgarlundur verður að veruleika

Eitt af verkefnum Umhverfisnefndar á önninni í tengslum við Grænfánann var að stuðla að jákvæðu viðhorfi til lýðheilsu og náttúruverndar. Umhverfisnefnd skólans fékk þá hugmynd snemma á önninni að skólinn væri í samstarfi við skógrækt Hafnarfjarðar með það markmiði að gerður yrði skógarlundur eða svokallaður Flensborgarlundur í þeim tilgangi að útskriftarnemar og aðrir Flenborgarar gætu komið saman við ýmis tilefni í framtíðinni og gróðursett tré.

Vel var tekið í hugmynd umhverfsnefndar og við tók langt og krefjandi ferli sem laut að skipulagi og framkvæmd og það tókst nú í lok annar! Flensborgarkólinn hefur gert samning við Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og fengið afnot af svæði skógræktarinnar þar sem Flensborgarar geta skapað nýjar minningar saman, lagt sitt af mörkum til umhverfisins og haft þannig jákvæð áhrif á skólastarfið.

Í gær var fyrsta skrefið tekið og fór umhverfisnefndin ásamt kennurum, skólameistara og aðstoðarskólameistara á svæðið til að marka upphafið að því sem við vonum að verði falleg hefð og skjólsæll reitur. Steinar Björgvinsson, framkvæmda- og ræktunarstjóri, tók á móti hópnum og sýndi honum svæðið og kenndi hvernig ætti að gróðursetja tré. Erla Ragnarsdóttir skólameistari fékk þann heiður að planta fyrsta birkitrénu en hópurinn allur gróðursetti tíu birkitré og lagði þar með grunn að framtíð Flensborgarlundar.