Flensborgarskólinn hélt upp á 144 ára afmæli sitt fimmtudaginn 1. október í síðustu viku. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá, þar sem nemendur og starfsfólk skólans komu saman og skemmtu sér vel. Farið var í pílukeppni, ný upphífingarstöng var vígð, en hún var gjöf frá foreldraráði skólans og þá gafst nemendum færi á því að koma saman í kórstofu skólans og skapa saman tónlist, undir dyggri stjórn þeirra Arngríms Braga Steinarssonar og Björns Thoroddsen. Björn er einmitt gamall Flensborgari og var á sama tíma að setja upp hina mögnuðu gítarveislu Hafnarfjarðar sem fór fram með glæsibrag um síðastliðna helgi.
Boðið var upp á ís og kandífloss og það má með sanni segja að skemmtileg afmælisstemmning hafi skapast hér í skólanum.
Til hamingju Flensborg!
