Flensborgarskólinn - afmælisrit í smíðum

 

Í tilefni af því að 50 ár eru liðin frá því að fyrstu stúdentarnir voru útskrifaðir frá skólanum kemur út í haust afmælissrit Flensborgarskólans. Í bókinni verður rakin saga skólans í stuttu máli, auk þess sem um 20 stúdentar rifja upp á skemmtilegan hátt veru sína þar. Bókin verður einnig ríkulega skreytt myndum sem mun eflaust vekja upp skemmtilegar minningar.

Tryggðu þér eintak í forsölu og fáðu nafnið þitt í heillaóskaskrá (Tabula Gratulatoria). Þetta er einstakt tækifæri til að sýna stuðning í því að saga skólans sé vel skráð og aðgengileg.  Verð á bókinni í forsölu verður kr. 7.980 kr (bók og kveðja). Hægt er að panta áskrift í netfanginu holar@holabok.is og í síma 692-8508 og auðvitað er best að gera það sem fyrst.

Þessa bók lætur enginn Flensborgari fram hjá sér fara!