Umhverfisnefnd skólans, skipuð 9 nemendum, hefur unnið að umhverfismálum skólans í vetur í samstarfi við kennarana sína þær Hólmfríði og Júlíu Bjarneyju.
Þema nefndarinnar í ár var lýðheilsa. Nefndin lagði meðal annars fyrir könnun um lýðheilsu á haust- og vorönn, kynnti tengsl lýðheilsu og umhverfis fyrir nemendum og hvatti nemendur og starfsfólk til hreyfingar og útivistar með ýmsum hætti. Stærsta verkefni umhverfisnefndarinnar í vetur var stofnun Flensborgarlundar, trjálundar í samstarfi við skógrækt Hafnarfjarðar, með það að markmiði að skapa vettvang fyrir eflingu lýðheilsu Flensborgara og tengingu við nærumhverfið og náttúru.
Fulltrúi Landverndar, Ósk Kristinsdóttir, gerði úttekt á starfi umhverfisnefndar í byrjun apríl og hlaut Flensborgarskólinn Grænfána í fimmta sinn í kjölfarið. Ósk hrósaði umhverfisnefndinni fyrir metnaðarfullt starf og vel unnin störf í þágu umhverfis- og náttúruverndar og hvatti skólann til dáða.
Meðfylgjandi eru myndir frá Grænfána flögguninni, merki umhverfisnefndar og slóð á nýja frétt um stofnun Flensborgarlundar þann 6. maí 2025.