Fréttir úr skólastarfi - Heilsueflandi vika, afmæli skólans og öflugt foreldraráð

HEF-vika, eða vika í anda heilsueflandi framhaldsskóla, er hafin. Þá verður einnig afmæli skólans fagnað í vikunni en hann var settur formlega í fyrsta sinn sem alþýðu- og gagnfræðaskóli þann 1. október 1882. Ætlunarverk skólans á þeim tíma var að veita þeim sem í hann ganga“...almenna menntun, glæða sálargáfurnar, auka þekkingu og styrkja siðferðislega hæfileika þeirra“ og það má segja að þetta sé enn veigamikið hlutverk skólans, nú 144 árum síðar. Endilega kynnið ykkur vel dagskrá vikunnar en í meðfylgjandi fréttabréfi má einnig sjá upplýsingar um próftímabil í lok annarinnar, nýafstaðið nýnemaball og fleira.