Fréttir úr skólastarfinu - birting einkunna, prófsýning, brautskráning og fleira...

Á morgun, þriðjudaginn 20. maí er eftirfarandi um að vera í Flensborgarskólanum:

  • Kl. 9 eru einkunnir birtar í INNU
  • Kl. 11:30 - 13:00 fer prófsýning fram í skólanum - stofuskipan kennara er eftirfarandi
  • Kl. 12:30 mæta útskriftarefni vorsins í fyrirlestrarsal í undirritun á námsferlum

 

Brautskráning fer fram við hátíðlega athöfn laugardaginn 24. maí kl. 13:00 en við minnum á æfingu með útskriftarefnum á föstudaginn kl. 17.

Við mætum aftur til leiks miðvikudaginn 20. ágúst, en þá hefst kennsla með formlegum hætti. Dagana á undan verða birtar nýjar stundatöflur og verður það auglýst vel á öllum okkar miðlum. Þá erum við þessa dagana að kynna skólastarfið út á við og það væri gaman ef þið leggðuð okkur lið – við getum öll verið stolt af öflugu skólastarfi en allar upplýsingar um námið, bekkjarkerfið á fyrsta ári, áfangana og margt, margt fleira má finna á heimasíðu skólans.

 

Bestu þakkir fyrir samverunni á önninni sem er nú að líða og hafið það sem allra best í sumar!