Það styttist í annarlok en síðustu vikurnar í kennslu eru framundan. Við hvetjum ykkur öll til að nýta kennslustundirnar vel, skila verkefnum af heilindum, þ.e. skila eigin efni, vísa rétt í heimildir og virða tímamörk þannig að reglur um verkefnavinnu séu virtar. Einnig að virða og tileinka ykkur góða siði í prófum, hvort sem um er að ræða í hlutaprófi eða á lokaprófi. Í meðfylgjandi fréttabréfi er farið yfir það helsta er varðar fyrirkomulag lokanámsmats, úrræði og þjónustu skólans og mikilvægar dagsetningar á næstu vikum. Kynnið ykkur endilega þennan ramma skólastarfsins vel. Þá viljum við vekja athygli ykkar á dagskrá skólans á Degi íslenskrar tungu en þá verður íslenskunni gerð góð skil; lopapeysur verða allsráðandi, boðið verður upp á kleinur og stafsetningarkeppni í löngu frímínútum og æfingakeppni Gettu betur liðs skólans gegn kennurum fer fram í hádegishléinu. Spurningarnar munu að sjálfsögðu tengjast m.a. Jónasi Hallgrímssyni og fæðingarafmæli hans þennan dag, mánudaginn 16. nóvember.
Gangi ykkur öllum vel!