Fréttir úr skólastarfinu - nýnemaball, nýtt foreldraráð, góð umgengni og virðing í skólastarfi

Hér meðfylgjandi eru nýjustu fréttir úr skólastarfinu hér í Flensborgarskóla og upplýsingar um allt það helsta sem framundan er.

Hér er svo þrennt til viðbótar sem við viljum minna á:

  • Tölvuþjónustu skólans má finna á bókasafninu alla daga vikunnar. Afar mikilvægt er að nemendur sé tengdir við Office umhverfi skólans og þar geta e.t.v. foreldrar einnig hjálpað til. Ítarlegar leiðbeiningar má a.m.k. finna á heimasíðu skólans, sjá hér https://www.flensborg.is/is/leidbeiningar/tolvuthjonusta/office-365.
  • Tilkynningar vegna veikinda nemenda fara fram í INNU, neðarlega á forsíðunni, undir hnappnum skrá veikindi. Nánari upplýsingar um vinnuumhverfið í INNU má sjá hér.
  • Framundan er nýnemaball en það fer fram í næstu viku. Miðasala er farin af stað en nánari upplýsingar um dansleikinn, afmæli skólans og fleira má finna í meðfylgjandi fréttabréfi. Foreldrar eiga von á bréfi frá nýju foreldraráði en foreldrar koma m.a. að dansleikjum skólans og ýmis konar forvarnarverkefnum á skólaárinu. Þá eiga nemendur von á bréfi frá Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, vegna verkefnisins Samtal: Hvernig samfélag viljum við skapa saman? og það fer fram á fyrstu vikunum í október. Afar spennandi verkefni sem Flensborgarskólinn ætlar að taka þátt í hug af heilum hug.