- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Skólaskjár
- Enska
- Leiðbeiningar
Þá fer að líða að próftímabilinu á önninn. Síðasti kennsludagur er mánudagurinn 5. maí. Þriðjudagurinn 6. maí er svokallaður námsversdagur þar sem nemendur geta leitað til sinna kennara eftir nánari upplýsingum vegna prófa eða aðstoðar vegna verkefnaskila. Þá kemur námsmatsdagur, eða upplestrarfrí fyrir nemendur, miðvikudaginn 7. maí, þar sem nemendur geta nýtt tímann og lært fyrir prófin, en fyrsti eiginlegi prófdagurinn er fimmtudaginn 8. maí.
Allar nánari upplýsingar varðandi próftöflu má sjá bæði í INNU og á heimasíðu skólans. Athugið að öll próf fara fram í kennslustofum og er mikilvægt að nemendur gái vel að staðsetningu prófs og stofunúmeri hverju sinni. Nemendur eru einnig hvattir til þess að taka þátt í kennslumati annarinnar sem nú liggur fyrir á INNU. Þar gefst nemendum tækifæri til að meta gæði kennslu sem er afar mikilvægt til þróunar á góðu skólastarfi.
Á morgun er frídagur, 1. maí - baráttudagur verkalýðsins en á föstudaginn fer dimmisjón fram í fyrsta tíma og þá fellur kennsla niður en hefst samkvæmt stundatöflu kl. 09:50.
Enn frekari upplýsingar, t.d. um lykildagsetningar í maí, má sjá hér í tölvupósti frá skólameistara.