Gróðursetning í Flensborgarlundi

Í síðustu viku mættu galvaskir útskriftarnemar í Flensborgarlundi í skógrækt Hafnarfjarðar í þeim tilgangi að planta nokkrum birkitrjám. Þetta er í fjórða skiptið sem útskriftarhópur gróðursetur í landinu og strax má sjá árangur af vinnunni enda hefur á annað hundrað plöntum verið plantað. Reiturinn er engu að síður stór og mun vinnan vonandi halda áfram um ókomnatíð. Þetta er fallegt verkefni sem skólinn er stoltur af og gaman væri að sjá fleiri skóla taka að sér slík verkefni. 

Við hvetjum nærsamfélagið okkar til að styðja við verkefnið eins og kostur er og má hafa samband við stjórnendur skólans þess efnis.