Héðinn Unnsteinsson heimsótti nýnemabekkina á dögunum. Yfirskrift erindis Héðins er Vertu Úlfur en hann ræddi m.a. andlega líðan og mikilvægi samhyggðar við nýnemabekkina okkar. Þá ræddi Héðinn einnig um mikilvægi geðverndar og að allir komi fram hvort við annað af virðingu. Þetta var afar mikilvægt innlegg í gott skólastarf og við kunnum Héðni bestu þakkir fyrir komuna.
