Heimsókn í Seðlabankann

Nemendur í þjóðhagfræði heimsóttu Seðlabanka Íslands nýverið og fengu að kynnast því helsta í störfum bankans. Upplýsingafulltrúi bankans tók á móti nemendum, fór yfir sögu bankans og helstu hlutverk í starfi hans, allt frá því að halda utan um gjaldeyrisvaraforða Íslands, viðhalda efnahagslegum stöðugleika, hafa eftirlit með aðilum á fjármálamarkaði til þess að halda í tauma verðbólgunnar. Áhugi nemenda óx klárlega þegar peningar og gullstangir voru til umfjöllunar en það fékk enginn að taka með sér sýnishorn heim.

Við þökkum fyrir góðar móttökur í Seðlabankanum.