Nemendur í íslensku hafa undanfarið heimsótt Veröld – Hús Vigdísar Finnbogadóttur við Háskóla Íslands.
Tilefni heimsóknarinnar er að fræðast um tungumál, sögu þeirra, þróun og dreifingu en Veröld hýsir einmitt tungumálakennslu háskólans og sýningu um tungumál heimsins.
Nemendur voru til fyrirmyndar og lærðu ýmislegt í ferðinni, ekki síst að rata um stórt og flókið háskólasvæðið.