Í gær tók Daði Þór Friðriksson, stúdent frá Flensborgarskólanum síðan í vor, við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og/eða íþróttum. Daði Þór var dúx skólans við brautskráningu í vor og fékk fjöldann allan af verðlaunum, m.a. fyrir að halda úti jafningjaveri í stærðfræði þar sem nemendur skólans gátu leitað eftir aðstoð. Hann gerði sér einnig lítið fyrir og sigraði Efnafræðikeppni Íslands fyrr á árinu en auk þess er Daði Þór afrekssundmaður hjá SH.
Til hamingju með styrkinn, Daði Þór!
Meðfylgjandi er mynd af honum með Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands