Hlýleg og notaleg stemning var á bókasafninu í vikunni þrátt fyrir skýr merki um hrylling og hrekkjavökustemningu. Gott næði er á bókasafninu til þess að læra en einnig hægt að setjast niður og spjalla saman í rólegheitum. En uppbrotið er skemmtilegt og alltaf gaman þegar tækifæri til að breyta út af vananum eru nýtt með þessum hætti.


