Nú er innritun lokið í Flensborgarskólanum. Alls bárust 645 umsóknir, þar af 598 frá 10. bekkingum, í fyrsta, öðru og þriðja vali samtals.
Alls voru innritaðir 209 nýnemar á fyrsta ári og hafa allir nýnemar við skólann fengið tölvupóst með upplýsingum um námsbraut, bekkjarröðun og fleira.
Verið öll hjartanlega velkomin í Flensborg!
Greiðsluseðill fyrir skólagjöldum hefur verið sendur út ásamt stuttu kynningarbréfi um skólann og fyrstu daga skólahalds í ágúst en kennsla hefst fimmtudaginn 20. ágúst kl. 08:30, samkvæmt stundatöflu. Þeir sem ekki ætla að þiggja boð um skólavist eru vinsamlega beðnir um að láta vita með tölvupósti. Tekið verður á móti nýnemum við skólann miðvikudaginn 19. ágúst kl. 13:00 -14:30. Þar hitta nemendur bekkjarfélaga og umsjónarkennara þar sem farið verður yfir helstu atriði sem huga þarf að við upphaf kennslu. Athugið að hægt er að skoða skóladagatal næstu annar hér. Við biðjum hér með forráðamenn um að skipuleggja frí barna sinna þannig að það hafi ekki áhrif á mætingu þeirra í skólann í upphafi annar.
Skólinn er nú lokaður vegna sumarleyfa en brýn erindi má senda á flensborg@flensborg.is og þeim verður svarað við fyrsta tækifæri. Skrifstofan opnar aftur miðvikudaginn 5. ágúst kl. 09.00.
Njótið sumarsins!
Hér að neðan má sjá bréf skólameistara sem var sent út á alla nýnema og foreldra þeirra:
