Námsmatsdagur og haustfrí framundan

Á morgun, föstudag, er námsmatsdagur í Flensborgarskólanum. Þá er engin kennsla í húsinu en nemendur og starfsfólk geta nýtt daginn að vild, hvort sem er til góðrar útiveru eða til að ljúka verkefnum sem út af standa. Á mánudag og þriðjudag er svo haustfrí. Þá er skólinn lokaður og við fáum öll kærkomið frí til að hlaða batteríin fyrir lokasprettinn sem er framundan á önninni.

Kennsla hefst svo aftur samkvæmt stundaskrá, miðvikudaginn 28. október kl. 8:30.