Nemendur í ferðaáfanga í dönsku og helfararáfanga í sögu fóru í vettvangsferðir með kennurum sínum í síðustu viku. Fyrri hópurinn heimsótti Kaupmannahöfn og sá síðari Berlín. Nemendur í dönskuáfanganum hafa unnið hin ýmsu verkefni um Kaupmannahöfn og sögu borgarinnar það sem af er önn og notuðu ferðina til að tengja saman nám og upplifanir. Nemendur skoðuðu meðal annars Nyhavn, Det Kongelige Teater, Amalienborg, Rundetårn, Tivoli, Radhuspladsen, Christiansborg og fleira. Einnig fóru nemendur í ratleik þar sem þau þurftu að láta reyna á tungumálið og eiga samskipti við Dani, komast sjálf á milli staða og leysa ýmsar þrautir.
Nemendur í helfararáfanga fóru á söguslóðir í Berlín. Upplifunin var mikil enda stóð ljósahátíð yfir í borginni með fjölskrúðugu matar- og menningarlífi auk þess sem þau skoðuðu fundarstað nasista á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar við Wannsee, fangabúðirnar í Sachsenhausen og fleira.
Báðar ferðirnar voru lærdómsríkar og skemmtilegar og nemendur í alla staði til fyrirmyndar.