Ný skólanefnd tekin til starfa

Ný skólanefnd Flensborgarskólans var skipuð undir lok síðasta árs. Hún kom saman á dögunum til óformlegs samtals á Græna torginu. Markmiðið var að nýir og gamlir skólanefndarfulltrúar myndu hittast og setja sig inn í skólastarfið. Þetta var ánægjuleg stund og búið er að boða til fyrsta skólanefndarfundar síðar í febrúar.