Nýtt borðtennisborð frá Foreldraráði

Foreldraráð Flensborgarskólans hefur fært skólanum veglegt borðtennisborð að gjöf. Borðinu var komið fyrir á jarðhæð í H-húsi, þar sem Starfsbraut skólans hefur aðsetur og því ætti að vera nægt rými fyrir alla nemendur til að prófa borðtennisborðið. Við kunnum foreldraráðinu bestu þakkir fyrir þessa frábæru gjöf sem vonandi á eftir að nýtast nemendum vel og skapa skemmtilega tilbreytingu í skólastarfinu.

Með borðinu fylgja spaðar og kúlur og við biðjum því nemendur að ganga vel um búnaðinn og setja hann aftur á sinn stað að leik loknum. Einföldu reglublaði hefur verið komið fyrir hjá borðinu, en reglurnar eru þessar:

  • Við göngum vel um borðið, spaða og kúlur
  • Við erum ekki með mat í kringum borðið
  • Við göngum vel frá spöðum og kúlum í skápinn eftir notkun
  • Við komum fram af virðingu hvort við annað og leyfum öllum að vera með

Kærar þakkir til foreldraráðs Flensborgarskólans fyrir góða gjöf. Nú er bara að grípa spaðann og skora á einhvern í leik!