Foreldraráð hittist í fyrsta sinn í gær og lagði línurnar fyrir komandi skólaár. Það er ljóst að það er margt á döfinni, fyrirmyndarpottur fyrir nýnemadansleik er fyrsta verkefni ráðsins en svo er það afmæli skólans, ýmis forvarnarverkefni og aðalfundur. Aðalfundurinn fer fram fimmtudaginn 8. október, nánari upplýsingar um aðalfund síðar.