Opið hús fyrir 10. bekkinga og foreldra þeirra

Flensborgarskólinn býður að þessu sinni 10. bekkingum og foreldrum þeirra á opið hús þann 14. apríl n.k. Skólastarfið í heild sinni verður kynnt með sérstakri áherslu á fjölbreyttar námsleiðir, sbr. námsbrautir til stúdentsprófs og svið á þeim, þar á meðal íþróttaafrekssvið. Fulltrúar nemenda verða á staðnum og kynna félagslíf meðal nemenda og svara öllum spurningum um það.

Þá verður einnig hægt að bóka einstaka kynningar hjá námsráðgjöfum og verða þær auglýstar nánar síðar.