Daði Þór Friðriksson gerði sér lítið fyrir á dögunum og sigraði landskeppni í efnafræði sem Efnafræðifélag Íslands stendur árlega fyrir. Keppnin hefst á forkeppni en um 14 efstu þar fá þátttökurétt í úrslitakeppninni sem er bæði fræðileg og verkleg. Daði Þór tók einnig þátt í keppninni á síðasta skólaári en þá kom sigurvegarinn einnig úr Flensborg, Bergur Fáfnir Bjarnason. Bergur Fáfnir tók í kjölfarið þátt í ólympíuliði Íslands í efnafræði það ár og stundar nú nám í efnaverkfræði við Háskóla Íslands.
Þess má einnig geta að bæði Bergur Fáfnir og Daði Þór hafa haldið utan um jafningjakennslu í stærðfræði síðasta árið sitt hér í Flensborg. Svo eru þeir líka sterkir sundmenn hjá SH. Þeim er sannarlega ýmislegt til lista lagt.
Til hamingju með sigurinn, Daði Þór!
