- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Skólaskjár
- Enska
- Leiðbeiningar
Nú eru komin svokölluð símahótel í flestar stofur. Þetta eru ýmist box eða veggspjöld með vösum þar sem nemendum býðst að setja símann í frí á meðan á kennslustund stendur. Markmiðið með þessum símahótelum er að nemendur nýti kennslustundirnar betur með því að setja símann í hvíld og vonandi verða þau til að bæta námsumhverfi nemenda, draga úr truflunum og auka vellíðan og námsárangur. Kennarar verkstýra í sínum tímum og nemendur eru minntir á að fylgja fyrirmælum um símanotkun. Kennarar geta nýtt símahótelin eftir því hvernig hentar hverju sinni.
Símarnir hafa óneitanlega truflandi áhrif í kennslu og vonir okkar standa til þess að nemendur séu meðvitaðir um truflunina og vilji nýta tækifærið og taka þátt í þessu með okkur. Foreldrar eru hvattir til þess að taka samtalið heima um einbeitningu í skólastofunni og mikilvægi þess að nemendur séu virkir í náminu.
